Bananakjúklingur
Þennan bananakjúkling var faðir minn duglegur að elda
þegar ég var yngri. Mér þótti hann aldrei sérstaklega góður því mér
fannst ofboðslega skrýtið að blanda sætum ávöxtum við kjúkling og
beikon. En bragðlaukarnir hafa sem betur fer þroskast og núna finnst mér
hann meiriháttar.
1 stór kjúklingur
salt
hvítur pipar
paprikuduft
3 msk smjör
500 ml eplasafi
250 g rauð vínber
250 ml rjómi
3 bananar
hálft bréf beikon
3 msk maizena jafnari
Skerið kjúklinginn í 8 bita (2 læri, 2 leggi og 4 bringubita) og hamflettið.
Blandið
salti, pipar og papriku saman í skál og stráið yfir kjúklingabitana.
Bræðið 2 msk af smjöri á pönnu og brúnið kjúklingabitana við góðan hita.
Lækkið hitann og hellið eplasafanum yfir. Látið krauma í 30-40 mínútur.
Bætið þá rjóma út í og kryddið meira eftir smekk. Hrærið maizena
jafnara saman við og látið krauma þar til sósan þykknar.
Setjið kjúklingabitana í eldfast mót eða fallegt fat og hellið sósunni yfir.
Kljúfið banana og skerið í tvennt þannig að úr hverjum
banana verði 4 sneiðar. Brúnið þá á báðum hliðum á pönnu með 1 msk af
smjöri og raðið ofan á kjúklinginn.
Skerið beikon í litla bita og steikið þar til þeir verða stökkir.
Skerið vínber í tvennt og stráið yfir kjúklinginn ásamt beikonbitum.
Hér
er það smekksatriði hversu mikið á að krydda kjúklinginn, ég þek alla
bitana með kryddblöndunni og smakka svo sósuna til með paprikudufti og
hvítum pipar.
Ég
kýs að hamfletta kjúklinginn því mér þykir ekki gott að hafa skinnið
með í þessum rétti. Mörgum finnst gott að hafa skinn en það gefur
sterkara kjúklingabragð.
Berið réttinn fram með hrísgrjónum og salati.
Ég mæli með því að þið prófið þennan svakalega góða kjúkling kæru vinir, hann mun slá í gegn í matarboðinu.
Verði ykkur að góðu!
Ummæli
Skrifa ummæli