Myntuskyrkaka




Botn
1 pakki Bastogne Duo kex frá Lu
100 g smjör

Fylling 
500 g hreint skyr
1 vanillustöng
1 dl flórsykur
250 ml þeyttur rjómi
4 blöð matarlím
4 msk rjómi
100 g suðusúkkulaði
lauf af 6 myntustilkum

Krem 
50 g Pipp með piparmyntu
3 msk rjómi




Myljið kexið í matvinnsluvél eða mortéli, bræðið smjör og blandið saman í skál. 



Þrýstið blöndunni í botninn á smelluformi og upp með hliðunum. Kælið í ísskáp á meðan fyllingin er gerð.



Setjið skyrið í skál, skerið vanillustöngina endilanga og skafið fræin úr henni með hnífsoddi. Þeytið vanillufræjum saman við skyrið og bætið flórsykri við. Ég kýs að nota vanillustangir eða -dropa því mér þykir vanillusykurinn svo bragðlítill.

Blandið þeyttum rjóma varlega saman við skyrið.
Leggið matarlímsblöð í skál með vatni þar til þau eru orðin mjúk. Hellið svo vatninu af þeim og setjið í pott ásamt 4 msk af rjóma. Bræðið saman við vægan hita og passið að matarlímsblandan brenni ekki. Kælið þar til blandan er orðin volg og hellið svo út í skyrfyllinguna í mjórri bunu, hrærið stanslaust á meðan.



Saxið súkkulaðið og myntuna smátt og blandið saman við.
Smyrjið fyllingunni á kexbotninn í smelluforminu og kælið þar til kakan er orðin stíf.

Bræðið Pipp saman við 3 msk af rjóma, kælið og hellið yfir kökuna. Passið að kremið sé ekki svo volgt að það bræði fyllinguna.

Ég ber kökuna fram á botninum úr forminu en hægt er að klæða hann með smjörpappír, sem sniðinn hefur verið ofan í formið, til að auðvelda að færa kökuna af botninum.

Mér finnst kakan verða ferskari með hreinu skyri, vanillustöng og flórsykri en til að einfalda uppskriftina má nota tilbúið vanilluskyr.






Þessi öðruvísi skyrkaka er yndisleg með kaffibollanum, sérstaklega fyrir þá sem eru mikið fyrir myntu eins og ég.


Ummæli

Vinsælar færslur