Svissnesk sítrónukaka



 
Svissneska sítrónukakan er aðeins fínni og fullorðinslegri en Starbuck's kakan en hún er hægra megin á myndinni.

75 g brætt smjör
175 g sykur
2 egg
salt á hnífsoddi
börkur af 1/2 sítrónu
50 g saxaðar hnetur eða möndlur
225 g hveiti
1 msk lyftiduft
3 msk rjómi
5 msk sýrður rjómi

Glassúr
4-5 msk flórsykur
2 msk rifinn sítrónubörkur
appelsínusafi eftir smekk
sítrónusafi eftir smekk

möndluflögur
kókosmjöl
            

Blandið þurrefnum saman í skál og leggið til hliðar.
Hrærið smjöri, sykri, eggjum, sítrónuberki, möndlum, rjóma og sýrðum rjóma vel saman.
Bætið þurrefnum við blönduna og hellið deiginu í vel smurt brauðform. Gott er að klæða botn og hliðar formsins með smjörpappír því formkökur eiga það til að festast örlítið við botninn.

Bakið neðarlega í ofninum við 180° í 50 mínútur.

Hrærið saman flórsykri, sítrónuberki, appelsínusafa og sítrónusafa. Blandan á að vera þunn og fljótandi svo hún bleyti upp í kökunni. Hellið yfir kökuna án þess að allur glassúrinn leki niður hliðarnar.

Ristið möndlur og kókosmjöl á þurri pönnu og sáldrið yfir.

Sigga baksturssnillingur, sem vann með mér á Hótel Eddu í Sælingsdal í fyrra, gaf mér uppskriftina að þessari unaðslegu köku. Möndlurnar í deiginu gefa kökunni svo góðan marsipankeim sem vegur upp á móti súra bragðinu af glassúrnum. En punktinn yfir i-ið setja ristuðu möndluflögurnar og kókosinn.


Verði ykkur að góðu!



Ummæli

Vinsælar færslur