Helgarkakan sem allir verða að smakka


Ég kláraði fyrra meistaranámsárið í lögfræði í gær. Þvílík gleði! Öllum fögnuði fylgir kaka, þannig á það að vera. Helgarkakan er að þessu sinni syndsamlega góð frönsk súkkulaðikaka með Dumle-karamellukremi. Betri franska er held ég ekki hægt að finna en uppskriftin er úr safninu hennar mömmu.  Svo að sjálfsögðu varð ég að bæta á hana karamellukremi. Allt er betra með smá karamellu.



Frönsk súkkulaðikaka með Dumle-karamellukremi


Franskur súkkulaðibotn

1/2 bolli sterkt uppáhellt kaffi
200 g púðursykur
200 g sykur
350 g smjör
300 g suðusúkkulaði
100 g ljóst rjómasúkkulaði
5 stór egg

Hitið kaffi og sykur saman í potti að suðu og takið af hellunni. Bætið við smjöri og súkkulaði, látið bráðna saman við kaffiblönduna og hrærið vel. Gott er að skera súkkulaðið fremur smátt svo það bráðni hraðar. Athugið að blandan má ekki sjóða eftir að smjöri og súkkulaði hefur verið blandað saman við hana. Hrærið egg örlítið saman í skál og bætið saman við súkkulaðiblönduna í pottinum. Hrærið vel þar til deigið verður silkimjúkt og slétt.

Smyrjið smelluform og sníðið bökunarpappírsörk í botn þess. Gott er að klæða smelluformið að utan með álpappír til að koma í veg fyrir að deigið leki úr því á meðan kakan er í ofninum. Hellið deiginu í smelluformið og bakið við 170° í 55-60 mínútur. Kælið kökuna í 3-4 klst. áður en hún er borin fram. Allra best þykir mér kakan þegar hún hefur staðið í ísskáp yfir nótt.


Dumle-karamellukrem

120 g Dumle karamellur
30 ml rjómi

Bræðið saman í potti Dumle karamellur og rjóma.
Kælið karamelluna að stofuhita og hellið yfir frönsku súkkulaðikökuna.


Öll hráefni í þessa syndsamlegu dásemd fást í Fjarðarkaupum.



Þessa verðið þið að prófa!



Tinna Björg

Ummæli

Skrifa ummæli

Vinsælar færslur