Vanillukaka með hvítu súkkulaði og Oreo kexi

Ég fékk tvær óléttar vinkonur í heimsókn í dag ásamt mökum og bakaði þessa vanilluköku til að hafa með kaffinu. Hún er svo stór að hún gæti fætt heilan her, það verður því kaka í öll mál næstu daga.
Kakan er alveg tilvalin fyrir vanilluunnendur eins og mig. Hvíta súkkulaðið í kreminu gefur góða fyllingu og passar afar vel við vanilluna í kökunni.


Vanillukaka með hvítu súkkulaði og Oreo kexi

Vanillubotnar 
420 g hveiti
400 g sykur
4 tsk lyftiduft
3/4 tsk salt
370 ml mjólk
3 stór egg170 g brætt smjör
3 tsk vanilludropar
1 pakki Oreo kexkökur 

Blandið þurrefnum saman í skál og hrærið mjólk saman við. Bætið eggjum við, einu í einu. Bræðið smjör og hrærið saman við ásamt vanilludropum.
Hellið deiginu í tvö 24 cm kökuform.
Bakið við 170° í 30-35 mínútur og kælið kökubotnana.


Vanillukrem 
450 g mjúkt smjör
500 g flórsykur
fræ úr 1 vanillustöng
80 g hvítt súkkulaði  


Þeytið smjör og flórsykur saman. Kljúfið vanillustöng í tvennt, skafið fræin úr henni og hrærið saman við.
Bræðið hvítt súkkulaði, kælið og blandið saman við kremið.

Athugið að gera þarf eina og hálfa kremuppskrift til að skreyta kökuna með rósum.


Setjið annan kökubotninn á fallegan disk og smyrjið kremi ofan á. Myljið Oreo kex og sáldrið yfir botninn með kreminu. Leggið hinn botninn ofan á og þekið kökuna með þunnu lagi af kremi.
Notið stút 1M eða 2D frá Wilton til að gera rósir, byrjið á miðjunni í rósinni og sprautið svo í hringi.

Hægt er að finna mörg kennslumyndbönd á YouTube sem sýna hvernig á að gera rósir.
Munið að æfingin skapar meistarann!

Kakan er alveg ótrúlega góð og hentar vel þegar von er á mörgum gestum því sneiðarnar eru stórar og kakan er svo seðjandi. Ég hvet ykkur til að prófa hana.


Góða helgi kæru vinir!

Tinna Björg



Ummæli

  1. Hvernig er kremið borið á?

    SvaraEyða
    Svör
    1. Ég byrja á að þekja kökuna með þunnu lagi af kremi með pönnukökuspaða og sprauta svo rósunum á.
      Ef ég er ekki með rósir á kökunni þá byrja ég á að þekja hana með þunnu lagi af kremi og set svo annað þykkra lag yfir. Þannig er minni hætta á að mylsna úr kökunni blandist saman við kremið.

      Eyða

Skrifa ummæli

Vinsælar færslur