Steikt eggjabrauð með jarðarberjum og bláberjum
Í
fyrradag birtist smá viðtal við mig í Lífinu sem fylgir Fréttablaðinu á
föstudögum. Þar er aðeins fjallað um mig og minn bakgrunn en einnig
fylgir uppskriftin að myntuskyrtertunni minni.
Viðtalið getið þið séð hér.
Menningarnótt
var í gær og í tilefni dagsins gerðumst við fjölskyldan svolítið
menningarleg. Faðir minn bauð okkur í Perluna þar sem við gæddum okkur á
mat, kaffi, kökum og ís. Eftir herlegheitin fórum við á Sögusafnið sem
er staðsett í einum tankinum í Perlunni. Á safninu kynnist maður
Íslandssögunni á ofboðslega skemmtilegan hátt en sýningargripirnir eru
eins konar vax- eða sílíkonfígúrur sem eru alveg skuggalega
raunverulegar.
Sjón
er sögu ríkari og ég mæli með því að þið kíkið á safnið og takið börnin
með ykkur. Hægt er að klæða sig upp sem víkingar og þar fást trésverð
fyrir börnin.
Eftir dýrindis Perluferð lá leið okkar niður í miðbæ í stutt bæjarrölt.
Við vöknuðum þennan fína sunnudag útsofin og fengum okkur amerískan morgunverð eins og hann gerist bestur.
Faðir
minn vann hjá varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli í fjölda ára og lærði
eitt og annað af Kananum sem við í fjölskyldunni höfum tileinkað okkur í
gegn um árin. Eitt af því er steikt eggjabrauð eða ,,french toast''
eins og það er víst kallað. Mér þykir eggjabrauðið betra en amerískar
pönnukökur en það er tilvalið í brunch með eggjum og beikoni
Steikt eggjabrauð
2 egg
1/2 dl mjólk
salt
hvítur pipar
3 brauðsneiðar
pönnukökusýróp
smjörklípa
jarðarber
bláber
Pískið egg og mjólk saman í skál.
Saltið og piprið eftir smekk.
Veltið báðum hliðum brauðsneiðanna upp úr eggjablöndunni og látið liggja í bleyti í stutta stund.
Steikið
brauðsneiðar á báðum hliðum þar til þær verða fallega brúnar. Þegar
miðjan hefur bólgnað upp eru eggin elduð og brauðsneiðarnar tilbúnar.
Setjið brauðsneiðarnar á disk og smyrjið með smjöri. Hellið svo pönnukökusýrópi og sáldrið berjum yfir þær.
Gott er að nota brauð sem farið er að þorna því það drekkur betur í sig eggjablönduna. Því er tilvalið að steikja eggjabrauð ofan í fjölskylduna þegar brauðið á heimilinu er farið að nálgast síðasta söludag.
Verði ykkur að góðu og njótið þess að dansa í rigningunni í dag!
Tinna Björg
Lítur ekkert smá vel út :)
SvaraEyða